FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 11. JANÚAR 2021

Fluttar voru út vörur fyrir 50,7 milljarða króna í nóvember 2020 og inn fyrir 61,5 milljarða króna fob (66,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 10,8 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um tæpa 7 milljarða króna í nóvember 2019 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruviðskiptajöfnuðurinn í nóvember 2020 var því 3,8 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Viðskipti með skip og flugvélar höfðu óveruleg áhrif á vöruviðskiptajöfnuðinn þennan mánuð.

Vöruskiptajöfnuður tímabilið janúar-nóvember 2020 var óhagstæður um 95,9 milljarða eða 10,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tímabili árið áður.

Verðmæti útflutnings dróst saman
Verðmæti vöruútflutnings í nóvember dróst saman um 1,5 milljarð eða um 2,8% í nóvember 2020, úr 52,2 milljörðum króna í 50,7 milljarða. Útflutningur sjávarafurða jókst um 2,9 milljarða eða um 14,9% á sama tíma og útflutningur á iðnaðarvörum dróst saman um 3 milljarða eða um 11,4%.

Verðmæti vöruútflutnings var 561,3 milljarður króna á fyrstu elleftu mánuðum ársins 2020 og lækkaði um 37,7 milljarða króna miðað við sama tímabil árið áður eða 6,3% á gengi hvors árs. Munar þar mestu um viðskipti með skip og flugvélar í janúar 2019 og minna verðmæti í útflutningi iðnaðarvara. Iðnaðarvörur voru 48,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 5,5% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 43,9% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 1,3% á milli ára.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 4%
Verðmæti vöruinnflutnings nam 61,5 milljörðum króna í nóvember samanborið við 59,2 milljarða í nóvember 2019. Mest aukning, eða 43%, var í innflutningi á neysluvörum s.s. heimilistækjum, fatnaði og lyfjum. Mestur samdráttur var í innflutningi á á eldsneyti og smurolíum sem dróst saman um 48% samanborið við nóvember 2019.

Verðmæti vöruinnflutnings var 657,2 milljarðar á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2020 og lækkaði um tæpa 48 milljarða króna miðað við sama tímabil fyrir ári eða 6,8% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í nær öllum flokkum nema neysluvörum.

Hafa ber í huga að gengisvísitala (vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng) hækkaði um 15,8% á tímabilinu nóvember 2019 til nóvember 2020.

Verðmæti útflutnings og innflutnings janúar-nóvember 2019 og 2020
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
ári á gengi hvors árs,
% janúar-nóvember
Nóvember Janúar-nóvember
20192020 2019 2020
Útflutningur alls fob52.182,650.730,9598.961,0561.288,7-6,3
Sjávarafurðir19.659,422.598,5243.439,4246.681,91,3
Landbúnaðarvörur þ.m.t. eldisfiskur4.115,43.135,628.075,030.635,49,1
Iðnaðarvörur26.739,423.695,9285.406,1269.818,2-5,5
Aðrar vörur1.668,41.300,842.040,614.153,2-66,3
Innflutningur alls fob59.153,561.535,6705.194,4657.212,7-6,8
Matvörur og drykkjarvörur5.772,36.161,267.374,968.569,91,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.15.880,917.131,1202.023,4194.351,7-3,8
Eldsneyti og smurolíur6.658,13.464,287.709,845.626,8-48,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)12.884,415.431,0155.398,5148.067,5-4,7
Flutningatæki8.444,65.788,095.950,687.930,7-8,4
Neysluvörur ót.a.9.498,113.547,196.347,7112.126,816,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)15,113,0389,4539,438,5
Vöruviðskiptajöfnuður-6.970,95-10.804,69-106.233,31-95.924,00 

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrri mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir en geta breyst í framtíðar endurskoðunum gagna.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.