FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MARS 2021

Fluttar voru út vörur fyrir 52,6 milljarða króna í febrúar 2021 og inn fyrir 64,5 milljarða cif (59,9 milljarða króna fob). Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 11,9 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 9,3 milljarða króna í febrúar 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruviðskiptajöfnuðurinn í febrúar 2021 var því 2,6 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 149,5 milljarða króna sem er 38,9 milljörðum hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 2,6% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í febrúar 2021 jókst um 6,5 milljarða króna, eða um 14,0%, frá febrúar 2020, úr 46,1 milljarði króna í 52,6 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 4,7 milljarða króna, eða um 22,1% samanborið við febrúar 2020, og útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 1,7 milljarða (8,6%).

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá mars 2020 til febrúar 2021, var 629,6 milljarðar króna og hækkaði um 16,0 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 2,6% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 48,5% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 1,5% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 43% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 5,3% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 14,6% á sama tímabili.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 2,9% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 64,5 milljörðum króna cif í febrúar 2021 samanborið við 55,4 milljarða í febrúar 2020. Verðmæti skipainnflutnings nam 1,2 milljörðum króna í febrúar 2021 en var óverulegt fyrir ári síðan. Verðmæti fjárfestingavara utan flutningstækja jókst um 32,4% samanborið við febrúar 2020.

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 779,1 milljarður króna og lækkaði um 22,9 milljarða miðað við tólf mánuði þar á undan eða 2,9% á gengi hvors árs fyrir sig. Mestu munaði um samdrátt í innflutningi á eldsneyti.

Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili
Milljarðar króna á gengi hvors ársMars 2019 - febrúar 2020Mars 2020 - febrúar 2021Breyting, %
Útflutningur alls fob613,6 629,6 2,6
Sjávarafurðir257,0 270,6 5,3
Landbúnaðarvörur (þ.m.t. eldisfiskur)31,8 36,7 15,5
Iðnaðarvörur300,8 305,4 1,5
Aðrar vörur24,0 17,0 -29,5
Innflutningur alls cif802,0 779,1 -2,9
Matvörur og drykkjarvörur78,9 81,9 3,7
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.229,5 240,9 5,0
Eldsneyti og smurolíur98,4 46,4 -52,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)169,5 179,4 5,9
Flutningatæki112,0 94,5 -15,6
Neysluvörur ót.a.113,3 135,5 19,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)0,4 0,6 38,6
Vöruviðskiptajöfnuður-188,4 -149,5

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.