FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. SEPTEMBER 2020

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 30. september 2020 kl. 09.06 frá upprunalegri útgáfu. Eingöngu taflan í fréttinni var leiðrétt.

Fluttar voru út vörur fyrir 44,1 milljarð króna í ágúst 2020 og inn fyrir 55,3 milljarða króna fob (59,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 11,2 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 12,2 milljarða króna í ágúst 2019 á gengi hvors árs fyrir sig.1 Vöruviðskiptajöfnuðurinn í ágúst 2020 var því tæpum milljarði króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Viðskipti með skip og flugvélar höfðu óveruleg áhrif á vöruviðskiptajöfnuðinn þennan mánuð.

Verðmæti útflutnings dregst saman
Verðmæti vöruútflutnings var 44,0 milljörðum króna lægra á fyrstu átta mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári síðan eða 10,2% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Munar þar mestu um viðskipti með skip og flugvélar í janúar 2019. Iðnaðarvörur voru 49,4% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 7,9% lægra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 43,0% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra var 1,3% lægra en á sama tíma í fyrra.

Verðmæti vöruinnflutnings 69,4 milljörðum lægra
Verðmæti vöruinnflutnings var 69,4 milljörðum króna lægra á fyrstu átta mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári eða 13,6% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Samdráttur í innflutningi er nánast í öllum flokkum en þó eykst verðmæti innflutnings á fólksbílum á milli ára á gengi hvors árs.

Endurskoðun á gögnum utanríkisverslunar er væntanleg
Enn skal það áréttað að auk hefðbundinnar útgáfu bráðabirgðatalna og endanlegra talna verður verklag endurskoðunar vöruviðskipta eftirfarandi: Fyrir útgáfu vöruviðskipta fyrir janúar-október 2020, sem fyrirhuguð er þann 30. nóvember nk., verða tímaraðir endurskoðaðar eftir þörfum. Verður þá leitast við að innleiða breytingar vegna nýrri eða betri gagna, nýrri eða endurbættra aðferða við mat á gögnum og endurskoðun staðla og flokkunarkerfa. Næsta meiriháttar endurskoðun er fyrirhuguð árið 2024 og síðan á fimm ára fresti eftir það.

Verðmæti útflutnings og innflutnings janúar-ágúst 2019 og 2020
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
ári á gengi hvors árs,
% janúar-ágúst
Ágúst Janúar-ágúst
20192020 2019 2020
Útflutningur alls fob45.886,444.056,6430.513,2386.555,3-10,2
Sjávarafurðir17.105,520.277,6168.500,3166.385,2-1,3
Landbúnaðarvörur1.974,91.842,718.243,819.411,76,4
Iðnaðarvörur24.292,521.028,7207.144,0190.852,2-7,9
Aðrar vörur2.513,5907,536.625,19.906,2-73,0
Innflutningur alls fob58.093,455.303,6510.699,6441.254,3-13,6
Matvörur og drykkjarvörur4.602,86.050,947.680,145.159,0-5,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.14.844,514.991,0147.923,2128.511,9-13,1
Eldsneyti og smurolíur10.504,24.547,763.110,431.776,7-49,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)13.431,213.750,2116.674,4101.991,4-12,6
Flutningatæki6.873,95.923,968.728,161.742,9-10,2
Neysluvörur ót.a.7.817,810.011,466.273,371.607,18,0
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)18,928,5310,2465,550,1
Vöruviðskiptajöfnuður-12.207,01-11.247,03-80.186,46-54.699,07 

1Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrri mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir en geta breyst í framtíðar endurskoðunum gagna.

Talnefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.