Fluttar voru út vörur fyrir 77,1 milljarð króna fob í september 2025 og inn fyrir 122,6 milljarða cif (116,7 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 45,5 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 22,7 milljarða króna í september 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruviðskiptajöfnuðurinn í september 2025 var því 22,9 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 504,7 milljarða króna sem er 136,6 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 2% á tólf mánaða tímabil
Verðmæti vöruútflutnings í september 2025 var 10,7 milljörðum króna minni (12%) en í september 2024, fór úr 87,8 milljörðum króna í 77,1 milljarð.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 956,6 milljarðar króna og jókst um 16,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 2% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 1% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 12% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 122,6 milljörðum króna í september 2025 samanborið við 110,5 milljarða í september 2024 og jókst um 12,2 milljarða eða 11%.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.461,4 milljarðar króna og jókst um 153,3 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 12% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum en aukning var á öðrum liðum innflutnings, mest á fjárfestingarvörum sem jukust um 48% eða 154 milljarða. Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings á tölvubúnaði tengdum gagnaverum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 188,4, styrktist um 3,8% (195,9) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 7,7% sterkara í september 2025 (182,7) samanborið við september 2024 (198,0).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir september og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.