FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 09. OKTÓBER 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 83,8 milljarða króna fob í september 2023 og inn fyrir 107,6 milljarða cif (102,2 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 23,7 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 42,7 milljarða króna í september 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í september 2023 var því 19,0 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 388,9 milljarða króna sem er 135,0 milljörðum króna óhagstæðari en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 2% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í september 2023 var 7,5 milljörðum króna minna (8%) en í september 2022, fór úr 91,4 milljörðum króna í 83,8 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 945,6 milljarðar króna og dróst saman um 20,5 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 2% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 55% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 5% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 2% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 9% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 107,6 milljörðum króna í september 2023 samanborið við 134,1 milljarð í september 2022 og minnkaði því um 26,5 milljarða króna eða um 20%. Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 25,2 milljörðum króna sem er minnkun um 0,8 milljarða króna (3%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 26,3 milljörðum króna og minnkaði um 8,4 milljarða (24%) og verðmæti eldsneytis- og smurolíu nam 16,4 milljörðum og minnkaði um 15,9 milljarða króna (49%) samanborið við september 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.334,5 milljarðar króna og jókst um 114,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 9% á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri flokkum er verðmætaaukningin mest í eldsneyti, fjárfestingavörum og flutningatækjum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,1 og var gengið 2,4% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 190,5 Gengið var 0,2% veikara í september 2023 (189,1) samanborið við september 2022 (188,8).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir september og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.