FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. NÓVEMBER 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 71,3 milljarða króna fob í október 2023 og inn fyrir 121,8 milljarða cif (115,9 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 50,5 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 55,9 milljarða króna í október 2022 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í október 2023 var því 5,5 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 385,9 milljarða króna sem er 89,1 milljarði króna óhagstæðari en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 4% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í október 2023 var 8,5 milljörðum króna minna (11%) en í október 2022, fór úr 79,9 milljörðum króna í 71,3 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 937,6 milljarðar króna og dróst saman um 35,5 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 55% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 6% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra stóð nánast í stað í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 121,8 milljörðum króna í október 2023 samanborið við 135,8 milljarða í október 2022 og minnkaði því um 14,0 milljarða króna eða um 10%. Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 32,0 milljörðum króna og dróst saman um 1,5 milljarða króna (4%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 29,7 milljörðum króna og minnkaði um 1,7 milljarða (5%) og verðmæti eldsneytis- og smurolíu nam 17,7 milljörðum og dróst saman um 10,5 milljarða króna (37%) samanborið við október 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.323,6 milljarðar króna og jókst um 53,6 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri flokkum er verðmætaaukningin mest í fjárfestingavörum, flutningatækjum og mat- og drykkjarvörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,3 og var gengið 2,9% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 189,8 Gengið var 1,2% veikara í október 2023 (192,0) samanborið við október 2022 (189,8).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir október og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.