Fluttar voru út vörur fyrir 74,2 milljarða króna fob í desember 2025 og inn fyrir 115 milljarða cif (109,1 milljarð króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 40,8 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 45,9 milljarða króna í desember 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruskiptajöfnuðurinn í desember 2025 var því 5,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 483,6 milljarða króna sem er 59,1 milljarði króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings dróst saman um 1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í desember 2025 var 10,3 milljörðum króna minni (12%) en í desember 2024, fór úr 84,6 milljörðum króna í 74,2 milljarða.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 922,2 milljarðar króna og dróst saman um 9,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 52% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 2% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 39% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 115 milljörðum króna í desember 2025 samanborið við 130,5 milljarða í desember 2024 og dróst því saman um 15,5 milljarða króna eða um 12%.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.405,9 milljarðar króna og jókst um 49,2 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og hrávörum og rekstrarvörum en á móti kom aukning á innflutningi á flestum öðrum liðum, mest þó á fjárfestingarvörum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 186,8 og var gengið 4,3% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 0,9% sterkara í desember 2025 (189,3) samanborið við desember 2024 (191,1).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir desember og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.
Talnaefni fyrir vöruviðskipti í nóvember 2025 hefur verið uppfært samhliða þessari útgáfu.