FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. DESEMBER 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 82 milljarða króna fob í nóvember 2023 og inn fyrir 110,8 milljarða cif (104,8 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 28,8 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 38,2 milljarða króna í nóvember 2022 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í nóvember 2023 var því 9,4 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 379,2 milljarða króna sem er 72,7 milljörðum króna óhagstæðari en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 4% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í nóvember 2023 var 3,3 milljörðum króna hærra (4%) en í nóvember 2022, fór úr 78,7 milljörðum króna í 82 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 940,6 milljarðar króna og dróst saman um 39,2 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 55% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 8% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst lítillega eða um 1% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 110,8 milljörðum króna í nóvember 2023 samanborið við 116,9 milljarða í nóvember 2022 og minnkaði því um 6,2 milljarða króna eða um 5%. Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 25,9 milljörðum króna og dróst saman um 3 milljarða króna (10%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 27,9 milljörðum króna og minnkaði um 1,4 milljarða (5%) og verðmæti eldsneytis- og smurolíu nam 14,9 milljörðum og dróst saman um 0,3 milljarða króna (2%) samanborið við nóvember 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.319,8 milljarðar króna og jókst um 33,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 3% á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri vöruflokkum er verðmætaaukningin mest í fjárfestingavörum, flutningatækjum og mat- og drykkjarvörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,4 og var gengið 3% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 189,7 Gengið var 0,8% veikara í nóvember 2023 (197,5) samanborið við nóvember 2022 (196,0).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir nóvember og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.