FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 10. APRÍL 2026

Fluttar voru út vörur fyrir 93,1 milljarð króna fob í mars 2026 og inn fyrir 131 milljarð cif (125,1 milljarð króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 37,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 42,2 milljarða króna í mars 2025 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í mars 2026 var því 4,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 421,3 milljarða króna sem er 38,2 milljarða króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti vöruútflutnings dróst saman um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í mars 2026 var 17 milljörðum króna meira (22%) en í mars 2025, fór úr 76,1 milljarði króna í 93,1 milljarð, aðallega vegna aukins útflutnings á sjávarafurðum.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 922,3 milljarðar króna og dróst saman um 36,1 milljarð miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 49% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 11% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 41% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 8% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 131 milljarði króna í mars 2026 samanborið við 118,3 milljarða í mars 2025 og jókst því um 12,7 milljarða króna eða um 11%. Aukning var aðallega vegna aukins innflutnings á fjárfestingavörum en á móti kom samdráttur í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.343,6 milljarðar króna og dróst saman um 74,4 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 5% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum, eldsneyti og smurolíum, fjárfestingavörum og flutningatækjum en aukning í innflutningi á matvörum og drykkjarvörum og öðrum neysluvörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 185,5 og var gengið 4,5% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 2,1% sterkara í mars 2026 (186,0) samanborið við mars 2025 (190,0).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir mars og gætu niðurstöður breyst.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.