FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. JÚNÍ 2025

Fluttar voru út vörur fyrir 79,8 milljarða króna fob í maí 2025 og inn fyrir 143,2 milljarða cif (137,0 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 63,4 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 20,9 milljarða króna í maí 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruviðskiptajöfnuðurinn í maí 2025 var því 42,5 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 479,5 milljarða króna sem er 97,8 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 7% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í maí 2025 var 9,3 milljörðum króna minna (10%) en í maí 2024, fór úr 89,1 milljarði króna í 79,8 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 988,1 milljarður króna og jókst um 62,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 7% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 55% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 10% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 35% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 1% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 12% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 143,2 milljörðum króna í maí 2025 samanborið við 110,0 milljarða í maí 2024 og jókst því um 33,2 milljarða króna eða um 30%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.467,6 milljarðar króna og jókst um 160,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 12% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum en á móti kom aukning á innflutningi á flestum öðrum liðum, mest þó á fjárfestingarvörum. Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings tölvuvara hjá fyrirtækjum sem reka gagnaver í landinu.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 192,9, styrktist um 0,6% (194,0) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 3,8% sterkara í maí 2025 (188,4) samanborið við maí 2024 (195,8).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir maí og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.