Fluttar voru út vörur fyrir 98 milljarða króna fob í júní 2026 og inn fyrir 155,3 milljarða cif (148,3 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 57,4 milljarða króna.
Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 39,8 milljarða króna í júní 2025 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í júní 2026 var því 17,6 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 443,9 milljarða króna sem er 53,1 milljarði króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti vöruútflutnings dróst saman um 3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júní 2026 var 29,1 milljarði króna meira (42%) en í júní 2025, fór úr 68,8 milljörðum króna í 98 milljarða, aðallega vegna aukningar í útflutningi á iðnaðarvörum.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 935,9 milljarðar króna og dróst saman um 24,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 3% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 49% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 11% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 41% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 8% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 155,3 milljörðum króna í júní 2026 samanborið við 108,6 milljarða í júní 2025 og jókst því um 46,7 milljarða króna eða um 43%. Aukning var aðallega vegna aukins innflutnings á fjárfestingavörum.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.379,8 milljarðar króna og dróst saman um 77,6 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 5% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var mestur í innflutningi á hrá- og rekstarvörum og fjárfestingavörum en einnig var samdráttur í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og flutningatækjum. Mest var aukning í innflutningi á neysluvörum og mat- og drykkjarvörum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 185,3 og var gengið 3,5% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 0,9% veikara í júní 2026 (186,3) samanborið við júní 2025 (184,6).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir júní og gætu niðurstöður breyst.