Fluttar voru út vörur fyrir 72,4 milljarða króna fob í júlí 2025 og inn fyrir 116,6 milljarða cif (110,6 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 44,2 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 34,1 milljarð króna í júlí 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruviðskiptajöfnuðurinn í júlí 2025 var því 10 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 483,5 milljarða króna sem er 115,5 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júlí 2025 var 9,7 milljörðum króna minni (12%) en í júlí 2024, fór úr 82,2 milljörðum króna í 72,4 milljarða.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 971,1 milljarður króna og jókst um 29,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 3% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 6% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra stóð nánast í stað í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 11% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 116,6 milljörðum króna í júlí 2025 samanborið við 116,3 milljarða í júlí 2024 og stóð því nánast í stað.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.454,5 milljarður króna og jókst um 145,4 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 11% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og flutningatækjum. Mesta aukning í innflutningi var í fjárfestingarvörum sem jukust um 40%. Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings tölvuvara hjá fyrirtækjum sem reka gagnaver í landinu.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 190,9, styrktist um 1,8% (194,3) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 6,6% sterkara í júlí 2025 (181,9) samanborið við júlí 2024 (194,9).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir júní og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.
Samhliða bráðabirgðatölum fyrir júlí eru birtar lokatölur fyrir júní. Frávik frá bráðabirgðatölum í júní má að mestu rekja til þess að umflutningur á olíu var tollafgreiddur inn í landið. Töflur hafa verið uppfærðar.