FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 10. JÚLÍ 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 76,7 milljarða króna fob í júní 2023 og inn fyrir 119,8 milljarða króna cif (113 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 43,1 milljarð króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 17,8 milljarða króna í júní 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í júní 2023 var því 25,3 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 368,8 milljarða króna sem er 144,8 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 10,5% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júní 2023 var 9,9 milljörðum króna minna (11,4%) en í júní 2022, fór úr 86,6 milljörðum króna í 76,7 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á 12 mánaða tímabili var 989,8 milljarða króna og jókst um 93,7 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 10,5% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 56% alls vöruútflutnings og jókst verðmæti þeirra um 9,9% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 11,6% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 21,3% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 119,8 milljörðum króna í júní 2023 samanborið við 104,4 milljarða í júní 2022 og hækkaði því um 15,4 milljarða króna eða um 14,8%. Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 27,9 milljörðum króna sem er aukning um 5,5 milljarða króna (24,4%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 34,8 milljörðum króna og jókst um 6,5 milljarða (22,8%) og verðmæti eldsneytis og smurolíu nam 12,4 milljörðum og jókst um 1,4 milljarða króna (12,5%) samanborið við júní 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.358,6 milljarðar króna og jókst um 238,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 21,3% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin var mest í eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,8 og var gengið 1,5% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 191,9. Gengið veiktist um 5,7% í júní (195,2) samanborið við júní 2022 (184,8).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir júní og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281157 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.