FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. JÚLÍ 2021

Fluttar voru út vörur fyrir 58,7 milljarða króna fob í júní 2021 og inn fyrir 88,9 milljarða króna cif (82,5 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 30,2 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 23,3 milljarða króna í júní 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í júní 2021 var því 6,9 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 173,5 milljarða króna sem er 4,4 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 10,5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júní 2021 jókst um 11,9 milljarða króna, eða um 25,5%, frá júní 2020, úr 46,8 milljörðum króna í 58,7 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 5,9 milljarða króna eða 29,2% samanborið við júní 2020 og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls og kísiljárns. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 4,1 milljarð eða um 17,9%, munar þar mestu um aukið verðmæti uppsjávarfisks.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2020 til júní 2021, var 668,5 milljarðar króna og hækkaði um 63,4 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 10,5% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 47% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 7,5% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 43% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 11,4% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 8,3 milljarða, eða 31,5%, á sama tímabili eða um 5% af heildarútflutningi.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 8,8% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 88,9 milljörðum króna í júní 2021 samanborið við 70,1 milljarð í júní 2020. Verðmæti flutningstækja (þar með talið skip og flugvélar) jókst um 5,3 milljarða (44,5 %), verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 4,1 milljarð króna (18,8%) og verðmæti eldsneytis jókst um 3,0 milljarða króna (105,3%) Aðrir liðir tóku minni breytingum.

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 842 milljarðar króna og jókst um 67,8 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 8,8% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili er mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og neysluvörum en á móti er samdráttur í eldsneyti.

Hafa má í huga að gengisvísitala1 hækkaði um 7,4% á þessu tólf mánaða tímabili en gengið styrktist aftur á móti um 3,9% á milli júní 2020 og 2021. Hér er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili
Milljarðar króna á gengi hvors ársJúlí 2019 - júní 2020Júlí 2020 - júní 2021Breyting frá fyrra tímabili (%)
Útflutningur alls fob605,1 668,5 10,5
Sjávarafurðir260,4 290,2 11,4
Landbúnaðarafurðirþ.m.t. fiskeldi32,3 42,8 32,5
Iðnaðarvörur294,3 316,4 7,5
Aðrar vörur18,1 19,1 5,6
Innflutningur alls cif774,2 842,0 8,8
Matvörur og drykkjarvörur80,0 86,5 8,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.225,9 256,5 13,5
Eldsneyti og smurolíur79,9 48,0 -39,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)167,1 192,5 15,2
Flutningatæki105,3 109,8 4,3
Neysluvörur ót.a.115,6 148,1 28,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)0,4 0,5 21,3
Vöruskiptajöfnuður-169,1-173,5

1 Heimild: Seðlabanki Íslands- Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng)

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.