FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 08. ÁGÚST 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 63,1 milljarð króna fob í júlí 2023 og inn fyrir 108,0 milljarða króna cif (102,5 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 44,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 31,3 milljarða króna í júlí 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í júlí 2023 var því 13,6 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 381,3 milljarða króna sem er 140,9 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 8,1% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júlí 2023 var 12,6 milljörðum króna minna (16,6%) en í júlí 2022, fór úr 75,7 milljörðum króna í 63,1 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á 12 mánaða tímabili var 977,2 milljarðar króna og jókst um 73,5 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 8,1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 56% alls vöruútflutnings og jókst verðmæti þeirra um 6,3% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 10,5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 18,7% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 108,0 milljörðum króna í júlí 2023 samanborið við 107,0 milljarða í júlí 2022 og hækkaði því um 1,0 milljarð króna eða um 0,9%. Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 23,1 milljarði króna sem er aukning um 1,9 milljarða króna (8,9%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 25,5 milljörðum króna og minnkaði um 3,4 milljarða (11,9%) og verðmæti eldsneytis og smurolíu nam 18,4 milljörðum og minnkaði um 4,6 milljarða króna (20,1%) samanborið við júlí 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.358,6 milljarðar króna og jókst um 214,4 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 18,7% á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri flokkum er aukningin mest í eldsneyti, fjárfestingavörum og flutningatækjum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,2 og var gengið 1,9% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 191,5. Gengið var 2,4% veikara í júlí 2023 (191,5) samanborið við júlí 2022 (187,0).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir júlí og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.