FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. FEBRÚAR 2026

Fluttar voru út vörur fyrir 72,4 milljarða króna fob í janúar 2026 og inn fyrir 72,7 milljarða cif (68,5 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 300 milljónir króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 7,8 milljarða króna í janúar 2025 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í janúar 2026 var því 7,5 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 475,8 milljarða króna sem er 64,8 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í janúar 2026 var 19,2 milljörðum króna minni (21%) en í janúar 2025, fór úr 91,6 milljörðum króna í 72,4 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 903,5 milljarðar króna og dróst saman um 42,6 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 5% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 51% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 8% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 72,7 milljörðum króna í janúar 2026 samanborið við 99,4 milljarða í janúar 2025 og dróst því saman um 26,6 milljarða króna eða um 27%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.379,2 milljarðar króna og jókst um 22,1 milljarð miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 2% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og hrávörum og rekstrarvörum en á móti kom aukning á innflutningi á flestum öðrum liðum, mest þó á fjárfestingarvörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 186,5 og var gengið 4,3% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 2,2% sterkara í janúar 2026 (187,4) samanborið við janúar 2025 (191,5).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir janúar og gætu niðurstöður breyst.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.