FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. FEBRÚAR 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 79,3 milljarða króna fob í janúar 2023 og inn fyrir 94,4 milljarða króna cif (85,8 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti voru því óhagstæð um 15,0 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 5,7 milljarða króna í janúar 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í janúar 2022 var því 9,4 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 325,1 milljarð króna sem er 92,3 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 27,4% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í janúar 2023 jókst um 3,4 milljarða króna, eða um 4,4%, frá janúar 2022, úr 76,0 milljörðum króna í 79,3 milljarða

Verðmæti vöruútflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.005,0 milljarðar króna og jókst um 216 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabili ári fyrr eða um 27,4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 57% alls vöruútflutnings og jókst verðmæti þeirra um 38,1% samanborið við tólf mánaða tímabili ári fyrr. Sjávarafurðir voru 35% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 15.5% í samanburði við tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 30,2% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 94,4 milljörðum króna í janúar 2023 samanborið við 81,6 milljarða í janúar 2022 og jókst því um 12,8 milljarða króna eða um 15,6%. Verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 25,8 milljörðum króna og jókst um 3,9 milljarða (17,9%), verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 25,2 milljörðum króna sem er aukning um 6,6 milljarða króna (35,1%) og verðmæti eldsneytis nam 14,4 milljörðum og jókst um 5,4 milljarða króna (58,5%) samanborið við janúar 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.330,1 milljarður króna og jókst um 308,6 milljarða miðað við tólf mánaða tímabili ári fyrr eða um 30,2% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin var mest í eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum.

Meðaltal gengisvísitölu1 síðustu tólf mánaða var 190,9 og var gengið 2,3% sterkara en tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 195,5. Gengið veiktist um 4,7% í janúar (202,8) samanborið við janúar 2022 (193,7).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir janúar og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Niðurstaða er komin í meðferð leigusamninga sem tengjast utanríkisverslun. Endurskoðunin hefur áhrif á bæði vöruskipta- og þjónustujöfnuð og kemur fram í næsta mánuði.

1Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.