Fluttar voru út vörur fyrir 78,1 milljarð króna fob í febrúar 2026 samkvæmt endurskoðuðum bráðabirgðatölum (78 milljarða skv. bráðabirgðatölum) og inn fyrir 87,6 milljarða cif (88 milljarða, skv. bráðabirgðatölum). Vöruviðskiptin voru því óhagstæð um 9,6 milljarða í febrúar 2026 (9,9 milljarða, skv. bráðabirgðatölum).