FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 09. MAÍ 2022

Fluttar voru út vörur fyrir 76,8 milljarða króna fob í apríl 2022 og inn fyrir 90,6 milljarða króna cif (84,0 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 13,8 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 11,4 milljarða króna í apríl 2021 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í apríl 2022 var því 2,3 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 241,5 milljarða króna sem er 86,6 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 31,1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í apríl 2022 jókst um 15.4 milljarða króna, eða um 25,0%, frá apríl 2021, úr 61,5 milljörðum króna í 76,8 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 12,3 milljarða króna eða 42,4% samanborið við apríl 2021.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 851 milljarður króna og jókst um 202 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 31,1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili og var verðmæti þeirra 50,1% meira en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 12,5% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 7,9 milljarða á milli tólf mánaða tímabila, eða um 24,5%, og mælist 5% af heildarútflutningsverðmæti á tólf mánaða tímabili.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 35,9% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 90,6 milljörðum króna í apríl 2022 samanborið við 72,9 milljarða í apríl 2021 og jókst um 17,7 milljarða króna eða 24,3%. Verðmæti hrá- og rekstrarvöru jókst um 7,4 milljarða (31,5%) og verðmæti fólksbifreiða um 4,5 milljarða. Verðmæti eldsneytis jókst um 3,5 milljarða króna (97,3%).

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.092,5 milljarðar króna og jókst um 288,6 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabili ári fyrr eða 35,9% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á tímabilinu var mest í flutningatækjum, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingarvörum.

Meðaltal gengisvísitölu1 á tólf mánaða tímabili var 193,2 og var gengið 5,1% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 203,6. Gengið styrktist um 4,2% í apríl (187,9) samanborið við apríl 2021 (196,2).

Meðferð leigusamninga er tengjast utanríkisverslun eru til endurskoðunar og getur sú endurskoðun haft áhrif á bæði vöruskipta- og þjónustujöfnuð.

Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur fyrir apríl að ræða og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

1 Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281157 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.