FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. SEPTEMBER 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 68,0 milljarða króna fob í ágúst 2023 og inn fyrir 107,3 milljarða cif (101,7 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 39,3 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 20,2 milljarða króna í ágúst 2022 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í ágúst 2023 var því 19,1 milljarði óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 407,6 milljarða króna sem er 178,6 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 1,1% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í ágúst 2023 var 26,0 milljörðum króna minna (27,7%) en í ágúst 2022, fór úr 94,1 milljarði króna í 68,0 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á 12 mánaða tímabili var 953,1 milljarður króna og jókst um 10,3 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 1,1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 55% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 1,9% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 4,3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 16,1% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 107,3 milljörðum króna í ágúst 2023 samanborið við 114,3 milljörðum í ágúst 2022 og minnkaði því um 7,0 milljarða króna eða um 6,1%. Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 24,1 milljarði króna sem er minnkun um 5,1 milljarð króna (17,5%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 27,8 milljörðum króna og minnkaði um 3,9 milljarða (12,2%) og verðmæti eldsneytis og smurolíu nam 17,1 milljarði og jókst um 2,8 milljarða króna (19,7%) samanborið við ágúst 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.360,8 milljarðar króna og jókst um 188,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 16,1% á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri flokkum er aukningin mest í eldsneyti, fjárfestingavörum og flutningatækjum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,1 og var gengið 2,0% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 191,2. Gengið var 1% sterkara í ágúst 2023 (187,7) samanborið við ágúst 2022 (189,5).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir ágúst og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.