FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 14. MAÍ 2025

Fluttar voru út vörur fyrir 959,0 milljarða króna fob árið 2024 og inn fyrir 1.356,7 milljarða króna cif (1.286,1 milljarð króna fob). Vöruviðskiptin 2024, reiknuð á fob/cif verðmæti, voru því óhagstæð um 397,7 milljarða króna. Vöruskiptahallinn 2024 var fyrir vikið 31,9 milljörðum króna meiri en árið 2023 þegar vöruviðskiptin voru óhagstæð um 365,8 milljarða á gengi hvors árs.

Verðmæti útflutnings 20,9 milljarði meira en á síðasta ári
Verðmæti vöruútflutnings árið 2024 var 20,9 milljörðum króna meira en árið 2023 á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls útflutningsverðmætis og verðmæti þeirra jókst um 3% samanborið við árið 2023. Útflutningur á áli og álafurðum átti stærsta hlutdeild í útflutningi á iðnaðarvörum árið 2024 eða 33% af heildarútflutningsverðmæti.

Verðmæti útfluttra sjávarafurða var 36% af heildarútflutningsverðmæti og minnkaði um 2% frá fyrra ári. Mesta hlutdeild í útflutningsverðmæti sjávarafurða árið 2024 áttu ferskur fiskur (27%) og fryst flök (25%). Stærstu viðskiptalönd í vöruútflutningi árið 2024 voru Holland, Bandaríkin og Bretland. Alls fóru 77% alls útflutnings til ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).

Verðmæti innflutnings 52,9 milljörðum meira en á síðasta ári
Árið 2024 var verðmæti vöruinnflutnings 52,9 milljörðum króna meira en árið 2023 á gengi hvers árs. Verðmæti innflutnings fjárfestingavara jókst um 15% en verðmæti flutningatækja dróst saman um 12% á milli ára og eldsneytis og smurolía um 10%. Stærstur hluti innflutningsverðmætis var vegna hrá- og rekstrarvara (27%) og fjárfestingarvara (26%).

Stærstu viðskiptalöndin í vöruinnflutning árið 2024 voru Noregur, Þýskaland, Bandaríkin og Kína. Verðmæti innflutnings frá löndum innan EES nam 60% af öllum innflutningi árið 2024.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.