FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. MAÍ 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 47,1 milljarði króna í apríl 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og fob verðmæti vöruinnflutnings 48,0 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 0,8 milljarða króna. Í apríl 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,2 milljarða króna á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings var 3,1 milljarði minna í apríl 2020 en í apríl 2019 eða 6,1% á gengi hvors árs. Minni viðskipti voru í öllum flokkum nema iðnaðarvörum.

Verðmæti vöruinnflutnings í apríl 2020 var 17,4 milljörðum lægra en í apríl 2019 eða 26,6% á gengi hvors árs. Lækkun var í öllum flokkum en mest í eldsneyti og smurolíum og hrá- og rekstrarvörum.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Þá hafa vikuleg gögn um vöruviðskipti við útlönd á vefsíðu Hagstofunnar um tilraunatölfræði verið uppfærð og ná nú til fyrstu 18 vikna ársins 2020.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.