Vöruviðskiptajöfnuður
Í september 2019 voru fluttar út vörur fyrir 51,6 milljarða króna og inn fyrir 69,2 milljarða króna fob (85,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17,5 milljarða króna. Í september 2018 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 14,3 milljarða króna á gengi hvors árs.1 Vöruviðskiptahallinn í september 2019 var því 3,3 milljörðum króna meiri en á sama tíma fyrir ári. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 16,7 milljörðum króna, samanborið við 14,4 milljarða í september 2018.

Á tímabilinu janúar til september 2019 voru fluttar út vörur fyrir 482 milljarða króna en inn fyrir 577,7 milljarða fob (628,4 milljarða króna cif). Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því 95,7 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 135,4 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptajöfnuðurinn frá janúar til september var því 39,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári síðan. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 107,5 milljörðum króna á tímabilinu janúar til september 2019, en 120,9 milljörðum króna fyrir sama tímabil 2018.

Útflutningur
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2019 var verðmæti vöruútflutnings 47,8 milljörðum króna meira en á sama tímabili árið áður, eða 11 % á gengi hvors árs1. Iðnaðarvörur voru 47,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,5% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,8% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 11,9% meira en á sama tíma árið áður. Mest var aukning vegna útflutnings skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski og frystum flökum.

Innflutningur
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2019 var verðmæti vöruinnflutnings 8 milljörðum króna meira en á sama tímabili árið áður, eða 1,4% á gengi hvors árs1. Innflutningur jókst mest á unnum hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum. Á móti kom minni innflutningur á flutningatækjum og eldsneyti og smurolíum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings janúar - september 2018-2019
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
ári á gengi hvors árs,
% janúar - september
September Janúar - september
20182019 2018 2019
Útflutningur alls fob48.786,851.610,0434.264,4482.035,511,0
Sjávarafurðir18.969,023.436,5171.632,5192.023,111,9
Landbúnaðarvörur1.561,31.905,313.799,520.178,046,2
Iðnaðarvörur26.805,123.163,1233.754,6230.138,2-1,5
Aðrar vörur1.451,43.105,015.077,839.696,2163,3
Innflutningur alls fob63.039,969.158,3569.702,6577.689,91,4
Matvörur og drykkjarvörur4.855,86.397,745.148,154.015,219,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.17.621,121.984,8156.181,9169.784,78,7
Eldsneyti og smurolíur11.352,310.256,985.080,873.367,3-13,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)11.950,712.801,7117.872,4128.845,19,3
Flutningatæki9.022,88.249,891.947,476.800,1-16,5
Neysluvörur ót.a.8.219,69.432,370.531,074.572,15,7
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)17,635,32.940,9305,3-89,6
Vöruviðskiptajöfnuður-14.253,1-17.548,4-135.438,2-95.654,4

1Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni