FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. JÚNÍ 2012


Vöruskiptajöfnuður
Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 55,4 milljarða króna og inn fyrir 56,5 milljarða króna fob (60,6 milljarða króna cif). Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 1,1 milljarð króna. Í maí 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 5,9 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu fimm mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 261,7 milljarða króna en inn fyrir 234,8 milljarða króna fob (252,6 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 26,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 39,6 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 12,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 11,9 milljörðum eða 4,8% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,2% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 24,1% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski, fiskimjöli og heilum frystum fiski.

Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 24,6 milljörðum eða 11,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í flutningatækjum og eldsneyti.

Vöruskiptin við útlönd janúar - maí 2012
Millj. kr á gengi ársins 2012 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-maí
Maí  Janúar-maí
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 56.975 55.418 249.773 261.663 4,8
Innflutningur alls fob 51.095 56.534 210.182 234.807 11,7
Vöruskiptajöfnuður 5.880 -1.116 39.591 26.857 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-maí 2011 og 2012
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-maí
Maí Janúar-maí
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 55.541,5 55.417,6 239.820,0 261.663,3 4,8
Sjávarafurðir 18.654,7 24.971,4 86.313,6 111.582,6 24,1
Landbúnaðarvörur 460,3 678,9 3.284,9 4.543,0 32,8
Iðnaðarvörur 35.154,4 28.230,4 137.789,8 138.983,4 -3,2
Aðrar vörur 1.272,2 1.536,9 12.431,7 6.554,4 -49,4
Innflutningur alls fob 49.809,9 56.533,8 201.806,6 234.806,7 11,7
Matvörur og drykkjarvörur 4.743,9 4.950,1 17.948,6 20.677,4 10,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 15.621,5 15.978,0 71.479,9 72.333,8 -2,8
Eldsneyti og smurolíur 8.358,5 8.853,4 24.807,6 32.434,9 25,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.665,0 9.993,3 44.335,2 48.293,0 4,6
Flutningatæki 4.288,9 10.177,4 16.933,4 32.680,0 85,3
Neysluvörur ót.a. 6.022,6 6.504,4 26.057,1 28.099,5 3,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 109,4 77,4 244,7 288,2 13,1
Vöruskiptajöfnuður 5.731,7 -1.116,2 38.013,4 26.856,7 ·


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 4,1% hærra mánuðina janúar–maí 2012 en sömu mánuði fyrra árs.

Í maí 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 2,6% hærra en í maí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.