FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. SEPTEMBER 2012


Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 51,5 milljarða króna og inn fyrir tæpa 39 milljarða króna fob (42,3 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12,5 milljarða króna. Í ágúst 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 8,8 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu átta mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 413,3 milljarða króna en inn fyrir 365,6 milljarða króna fob (393,6 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 47,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 66,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 18,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 8,7 milljörðum eða 2,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 52,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,5% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,8% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski. Á móti kom samdráttur í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og álafurða.

Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 27,5 milljörðum eða 8,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning innflutnings varð mest í flutningatækjum og eldsneyti en á móti kom samdráttur í innflutningi hrá- og rekstrarvara, aðallega súráls.

Vöruskiptin við útlönd janúar - ágúst 2012
Millj. kr á gengi ársins 2012 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-ágúst
Ágúst  Janúar-ágúst
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 52.174 51.493 404.620 413.318 2,1
Innflutningur alls fob 43.370 38.968 338.095 365.567 8,1
Vöruskiptajöfnuður 8.804 12.525 66.524 47.751 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-ágúst 2011 og 2012
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst
Ágúst Janúar-ágúst
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 54.874,2 51.493,3 397.895,2 413.317,7 2,1
Sjávarafurðir 23.933,0 21.384,9 152.092,2 176.014,5 13,8
Landbúnaðarvörur 529,0 719,6 4.708,7 6.525,9 36,3
Iðnaðarvörur 28.069,0 27.874,7 224.134,1 217.743,1 -4,5
Aðrar vörur 2.343,3 1.514,1 16.960,2 13.034,2 -24,4
Innflutningur alls fob 45.614,8 38.968,3 332.476,5 365.566,5 8,1
Matvörur og drykkjarvörur 4.381,9 3.260,3 31.024,8 33.356,7 5,7
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 16.770,4 10.292,8 116.060,3 107.192,5 -9,2
Eldsneyti og smurolíur 5.784,7 8.263,8 44.974,7 57.874,6 26,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.754,3 9.085,1 72.109,6 77.647,9 5,9
Flutningatæki 1.966,1 2.627,1 25.239,2 44.548,4 73,6
Neysluvörur ót.a. 5.907,0 5.418,0 42.640,0 44.189,8 1,9
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 50,5 21,2 427,9 756,6 73,9
Vöruskiptajöfnuður 9.259,5 12.524,9 65.418,7 47.751,2 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,7% hærra mánuðina janúar–ágúst 2012 en sömu mánuði fyrra árs.

Í ágúst 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,9% lægra en í ágúst árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.