FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2012

Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 47,4 milljarða króna og inn fyrir 45,0 milljarða króna fob (48,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,4 milljarða króna. Í júlí 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 9,2 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu sjö mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 361,8 milljarða króna en inn fyrir 326,6 milljarða króna fob (351,4  milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 35,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 57,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 22,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 9,5 milljörðum eða 2,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 52,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,7% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 17,5% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski, fiskimjöli og heilum frystum fiski.

Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings tæpum 32 milljörðum eða 10,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í flutningatækjum og eldsneyti.

Vöruskiptin við útlönd janúar - júlí 2012
Millj. kr á gengi ársins 2012 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-júlí
Júlí  Janúar-júlí
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 50.387 47.377 352.317 361.824 2,7
Innflutningur alls fob 41.149 44.998 294.636 326.628 10,9
Vöruskiptajöfnuður 9.238 2.379 57.681 35.197 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júlí 2011 og 2012
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí
Júlí Janúar-júlí
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 51.462,1 47.376,6 343.020,9 361.824,4 2,7
Sjávarafurðir 22.659,1 22.338,6 128.159,2 154.629,7 17,5
Landbúnaðarvörur 422,5 575,2 4.179,7 5.806,3 35,3
Iðnaðarvörur 27.171,7 21.311,2 196.065,2 189.868,4 -5,7
Aðrar vörur 1.208,9 3.151,6 14.616,8 11.520,0 -23,3
Innflutningur alls fob 42.027,0 44.997,5 286.861,7 326.627,7 10,9
Matvörur og drykkjarvörur 4.019,3 4.628,6 26.643,0 30.096,7 10,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.649,8 11.980,8 99.289,9 96.909,3 -5,0
Eldsneyti og smurolíur 8.394,1 8.620,6 39.190,0 49.610,8 23,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.966,3 10.833,2 61.355,3 68.571,3 8,8
Flutningatæki 2.519,5 3.145,5 23.273,2 41.923,1 75,4
Neysluvörur ót.a. 5.440,4 5.461,7 36.733,0 38.781,3 2,8
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 37,6 327,1 377,4 735,3 89,7
Vöruskiptajöfnuður 9.435,1 2.379,2 56.159,2 35.196,7 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 2,7% hærra mánuðina janúar–júlí 2012 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júlí 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 2.1% lægra en í júlí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.