FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. APRÍL 2012


Vöruskiptajöfnuður
Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,6 milljarða króna og inn fyrir tæpa 49,3 milljarða króna fob (53,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 5,4 milljarða króna. Í mars 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 14,7 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu þrjá mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 156,1 milljarð króna en inn fyrir tæpa 128 milljarða króna fob (138,2 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 28,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 30,3 milljarða á sama gengi¹.

Vöruskiptajöfnuðurinn var því 2,2 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 5,8 milljörðum eða 3,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,3% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 25,2% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski og fiskimjöli.

Innflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 8,0 milljörðum eða 6,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í eldsneyti.

Vöruskiptin við útlönd janúar - mars 2012
Millj. kr á gengi ársins 2012 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-mars
Mars  Janúar-mars
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 62.298 54.613 150.262 156.088 3,9
Innflutningur alls fob 47.602 49.252 119.959 127.964 6,7
Vöruskiptajöfnuður 14.696 5.361 30.303 28.124 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-mars 2011 og 2012
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-mars
Mars Janúar-mars
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 59.133,9 54.613,3 144.026,0 156.088,0 3,9
Sjávarafurðir 20.708,7 25.073,6 50.713,5 66.262,7 25,2
Landbúnaðarvörur 684,3 913,6 2.295,7 3.091,2 29,1
Iðnaðarvörur 30.229,9 27.691,2 81.084,8 83.505,0 -1,3
Aðrar vörur 7.511,0 934,9 9.931,9 3.229,1 -68,8
Innflutningur alls fob 45.184,3 49.251,9 114.980,2 127.964,2 6,7
Matvörur og drykkjarvörur 3.957,7 4.003,8 9.728,7 11.140,6 9,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 16.917,1 17.522,2 40.367,1 43.009,8 2,1
Eldsneyti og smurolíur 5.366,5 6.774,8 14.504,5 18.090,0 19,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 9.938,8 11.256,6 26.384,4 29.521,7 7,2
Flutningatæki 2.636,9 3.086,2 8.962,3 9.401,5 0,5
Neysluvörur ót.a. 6.349,3 6.538,2 14.950,7 16.632,7 6,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 18,0 70,2 82,5 167,8 .
Vöruskiptajöfnuður 13.949,6 5.361,4 29.045,8 28.123,8 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 4,3% hærra mánuðina janúar–mars 2012 en sömu mánuði fyrra árs.

Í mars 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 5,3% hærra en í mars árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.