FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. OKTÓBER 2004

Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 19,4 milljarða króna og inn fyrir tæpa 19,2 milljarða króna fob.  Vöruskiptin í september voru því hagstæð um 0,3 milljarða króna en í september í fyrra voru þau óhagstæð um 4,6 milljarða á föstu gengi¹. 
     Fyrstu níu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir tæpa 149,0 milljarða króna og inn fyrir 175,5 milljarða króna. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 26,6 milljarða en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 11,4 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 15,2 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 12,0 milljörðum eða 8,8% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,9% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti saltfisks og fersks fisks en á móti kom samdráttur í útflutningi lýsis. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara var 13,1% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukningar á útfluttum lyfjum og lækningavörum, áli og öðrum iðnaðarvörum.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 27,2 milljörðum eða 18,4% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í flestum liðum innflutnings. Mest aukning varð í innflutningi á fjárfestingarvöru, flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru og eldsneyti og smurolíu. Á móti kom minni innflutningur á skipum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.