FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 26. NÓVEMBER 2004

Vöruskiptajöfnuður
Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,9 milljarða króna og inn fyrir 21,6 milljarð króna fob. Vöruskiptin í október voru því óhagstæð um 4,6 milljarða króna en í október í fyrra voru þau óhagstæð um 2,7 milljarða á föstu gengi¹. 
     Fyrstu tíu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 165,3 milljarða króna og inn fyrir 197,1 milljarð króna. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 31,8 milljarða en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 14,1 milljarð á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 17,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu tíu mánuði ársins var 13,1 milljarði eða 8,6% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,9% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti saltfisks og fersks fisks en á móti kom samdráttur í útflutningi lýsis. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara var 14,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukningar á útfluttum lyfjum og lækningavörum, áli og öðrum iðnaðarvörum.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tíu mánuði ársins var 30,8 milljörðum eða 18,5% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Aukning varð í flestum liðum innflutnings. Mest aukning varð í innflutningi á fjárfestingarvöru, flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru og eldsneyti og smurolíu. Á móti kom minni innflutningur á skipum.

Talnaefni
 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.