FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. JANÚAR 2005

Vöruskiptajöfnuður 
Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 18,7 milljarða króna og inn fyrir 21,2 milljarða króna fob. Vöruskiptin í nóvember voru því óhagstæð um 2,5 milljarða króna en í nóvember árið áður voru þau óhagstæð um 0,2 milljarða á föstu gengi¹. 
     Fyrstu ellefu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 184,0 milljarða króna og inn fyrir 219,2 milljarða króna. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 35,2 milljarða en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 14,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 20,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu ellefu mánuði ársins var 16,4 milljörðum eða 9,8% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,9% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti saltfisks og fersks fisks en á móti kom samdráttur í útflutningi lýsis. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara var 14,3% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukningar á útfluttum lyfjum og lækningavörum, áli og öðrum iðnaðarvörum.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu ellefu mánuði ársins var 37,3 milljörðum eða 20,5% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Aukning varð í flestum liðum innflutnings. Mest aukning varð í innflutningi á flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti og smurolíu.



Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.