FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. JÚLÍ 2004

Vöruskiptajöfnuður 
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,3 milljarða króna og inn fyrir 23,2 milljarða króna fob.  Vöruskiptin í júní voru því óhagstæð um 6,9 milljarða króna en í júní í fyrra voru þau óhagstæð um 3,2 milljarða á föstu gengi¹. 
       Fyrstu sex mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 98,9 milljarða króna og inn fyrir 112,7 milljarða króna. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 13,9 milljarða en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 0,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 13,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu sex mánuði ársins var 5,3 milljörðum eða 5,6% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,7% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti saltfisks og fersks fisks en á móti kom samdráttur í útflutningi frystra flaka. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara var 7,3% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukningar á útfluttum lyfjum og lækningavörum.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu sex mánuði ársins var 18,3 milljörðum eða 19,3% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á fjárfestingarvörum en einnig var umtalsverð aukning í innflutningi hrá- og rekstrarvara, neysluvara, fólksbíla, flutningatækja til atvinnurekstrar, eldsneytis og smurolía og matvöru. Á móti kom minni innflutningur á skipum.

Talnaefni
 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.