FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 27. ÁGÚST 2004

Vöruskiptajöfnuður 
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,6 milljarða króna og inn fyrir 23,0 milljarða króna fob.  Vöruskiptin í júlí voru því óhagstæð um 6,4 milljarða króna en í júlí í fyrra voru þau óhagstæð um 5,0 milljarða á föstu gengi¹. 
       Fyrstu sjö mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 115,6 milljarða króna og inn fyrir 135,7 milljarða króna. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um tæpa 20,2 milljarða en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 5,9 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 14,3 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 7,1 milljarði eða 6,5% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,9% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti saltfisks og fersks fisks en á móti kom samdráttur í útflutningi frystra flaka. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara var 9,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukningar á útfluttum lyfjum og lækningavörum.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 21,4 milljörðum eða 18,7% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á flutningatækjum, aðallega flugvélum og fólksbílum. Á móti kom minni innflutningur á skipum. Einnig var umtalsverð aukning í innflutningi fjárfestingarvöru, hrá- og rekstrarvöru, neysluvöru, eldsneytis og smurolíu og matvöru.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.