FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 11. OKTÓBER 2011

Frétt um vöruviðskiptin við útlönd janúar-ágúst 2011 hefur verið leiðrétt en í fréttinni var stuðst við rangar forsendur um gengisbreytingar þegar tölur fyrra árs voru umreiknaðar.  Fréttatilkynning ásamt yfirlitstöflum er því birt leiðrétt.

Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 56,7 milljarða króna og inn fyrir 45,6 milljarða króna fob (49,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 11,1 milljarð króna. Í ágúst 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 7,5 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu átta mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 397,5 milljarða króna en inn fyrir 331,5 milljarða króna fob (356,8 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 65,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 75,6 milljarða á sama gengi¹.

Vöruskiptajöfnuðurinn var því 9,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 41,1 milljarði eða 11,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,6% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 56,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,5% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og kísiljárns. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða.

Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 50,7 milljörðum eða 18,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd ágúst 2011
Millj. kr á gengi ársins 2011 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-ágúst
Ágúst  Janúar-ágúst
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 43.864 56.696 356.385 397.462 11,5
Innflutningur alls fob 36.390 45.641 280.807 331.537 18,1
 
Vöruskiptajöfnuður 7.475 11.055 75.578 65.925 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-ágúst 2010 og 2011
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst
Ágúst Janúar-ágúst
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 41.874,9 56.695,9 365.560,5 397.462,5 11,5
Sjávarafurðir 17.625,9 23.933,0 142.374,9 152.091,9 9,6
Landbúnaðarvörur 279,1 631,7 4.339,4 5.293,2 25,1
Iðnaðarvörur 22.136,7 30.586,7 205.978,6 223.933,2 11,5
Aðrar vörur 1.833,3 1.544,5 12.867,7 16.144,2 28,7
Innflutningur alls fob 34.739,4 45.640,8 288.036,4 331.537,3 18,1
Matvörur og drykkjarvörur 3.380,2 4.601,1 28.249,0 31.244,8 13,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 10.480,8 16.547,3 98.112,3 115.907,6 21,2
Eldsneyti og smurolíur 6.457,8 5.784,7 37.796,6 44.974,6 22,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.271,1 10.750,7 66.091,5 72.204,6 12,1
Flutningatæki 1.665,2 1.966,1 16.790,9 24.115,2 47,3
Neysluvörur ót.a. 5.461,6 5.940,5 40.607,1 42.662,5 7,8
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 22,6 50,5 389,1 428,0 12,8
Vöruskiptajöfnuður 7.135,5 11.055,1 77.524,1 65.925,1 .


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 2,5% lægra mánuðina janúar–ágúst 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í ágúst 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,8% hærra en í ágúst árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.