FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. OKTÓBER 2008


Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 50,2 milljarða króna og inn fyrir 42,4 milljarða króna fob (46,3 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 7,8 milljarða króna. Í september 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 13,8 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu níu mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 322,6 milljarða króna en inn fyrir 365,1 milljarð króna fob (396,2 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 42,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 95,6 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 53,0 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Nú liggja fyrir nýjar upplýsingar um verslun með flugvélar við útlönd fyrir þriðja ársfjórðung. Helstu áhrif þeirra eru að tölur fyrir september sýna 7,8 milljarða króna afgang á vöruskiptum í stað þess að vöruskiptin væru í járnum eins og bráðabirgðatölur fyrir september gáfu til kynna. Hins vegar eykst halli júlímánaðar.
 
Útflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 54,1 milljarði eða 20,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 53,1% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 35,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,2% minna en á sama tíma árið áður.  Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka.

Innflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 1,0 milljarði eða 0,3% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum og fólksbílum.

Vöruskiptin við útlönd september 2008
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-september
September  Janúar-september
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 30.314 50.231 268.489 322.569 20,1
Innflutningur alls fob 44.134 42.406 364.096 365.130 0,3
Vöruskiptajöfnuður -13.820 7.826 -95.607 -42.562 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í september 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-september
september Janúar-september
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 20.991,5 50.231,0 210.068,8 322.568,5 20,1
Sjávarafurðir 8.591,2 15.382,6 92.206,2 115.249,6 -2,2
Landbúnaðarvörur 261,9 609,5 2.289,9 3.656,8 24,9
Iðnaðarvörur 8.223,5 25.024,0 84.252,8 164.894,3 53,1
Aðrar vörur 3.914,8 9.215,0 31.319,8 38.767,9 -3,2
Innflutningur alls fob 30.561,5 42.405,5 284.872,7 365.130,0 0,3
Matvörur og drykkjarvörur 2.103,8 3.338,6 18.523,4 25.891,7 9,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 6.839,6 13.896,7 72.135,1 112.761,7 22,3
Eldsneyti og smurolíur 3.901,0 7.308,0 25.908,8 43.569,4 31,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 5.598,4 7.284,3 65.164,0 74.927,3 -10,0
Flutningatæki 6.624,1 3.466,3 58.917,1 55.365,6 -26,5
Neysluvörur ót.a. 5.482,7 7.076,4 43.978,6 52.308,2 -6,9
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 11,9 35,3 245,7 306,1 -2,5
Vöruskiptajöfnuður -9.570,0 7.825,5 -74.804,0 -42.561,5 ·


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 27,8% hærra mánuðina janúar–september 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í september 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 44,4% hærra en í september árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin frá og með febrúartölum eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.