FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. NÓVEMBER 2009


Vöruskiptajöfnuður
Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 46,9 milljarða króna og inn fyrir 30,5 milljarða króna fob (33,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 16,4 milljarða króna. Í október 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 13,2 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu tíu mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 388,2 milljarða króna en inn fyrir 328,5 milljarða króna fob (358,8 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 59,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 47,1 milljarð á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 106,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 135,9 milljörðum eða 25,9% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,8% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 49,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 28,7% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og á útflutningi sjávarafurða.

Innflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 242,6 milljörðum eða 42,5% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd janúar-október 2009
Millj. kr á gengi ársins 2009 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-október
Október  Janúar-október
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 55.697 46.904 524.003 388.152 -25,9
Innflutningur alls fob 42.476 30.550 571.135 328.487 -42,5
Vöruskiptajöfnuður 13.221 16.354 -47.132 59.665 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-október 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-október
Október Janúar-október
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 47.523,1 46.903,7 369.849,8 388.152,2 -25,9
Sjávarafurðir 18.259,4 20.520,2 133.753,4 172.879,7 -8,8
Landbúnaðarvörur 630,9 820,3 4.300,9 5.944,9 -2,4
Iðnaðarvörur 26.447,2 23.925,5 191.273,2 193.307,7 -28,7
Aðrar vörur 2.129,9 1.637,6 40.522,3 16.019,8 -72,1
Innflutningur alls fob 36.242,4 30.549,6 403.116,1 328.486,8 -42,5
Matvörur og drykkjarvörur 3.212,4 3.328,5 30.439,7 34.205,0 -20,7
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.436,6 9.445,8 122.935,3 103.617,0 -40,5
Eldsneyti og smurolíur 6.073,2 1.707,4 49.769,5 41.079,3 -41,7
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.051,2 7.717,4 87.837,9 72.705,4 -41,6
Flutningatæki 2.063,6 1.846,1 56.277,9 24.918,1 -68,7
Neysluvörur ót.a. 5.390,5 6.484,6 55.560,1 51.483,8 -34,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 14,9 19,9 295,8 478,2 14,1
Vöruskiptajöfnuður 11.280,7 16.354,0 -33.266,3 59.665,4 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 41,7% hærra mánuðina janúar–október 2009 en sömu mánuði fyrra árs.

Í október 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 17,2% hærra en í október árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.