FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. JANÚAR 2010


Vöruskiptajöfnuður
Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,3 milljarða króna og inn fyrir 38,1 milljarð króna fob (41,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 6,2 milljarða króna. Í nóvember 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 2,6 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu ellefu mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 432,5 milljarða króna en inn fyrir 366,6 milljarða króna fob (399,2 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 65,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 42,1 milljarð á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 108 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 133,7 milljörðum eða 23,6% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,8% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 49,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 26,5% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og á útflutningi sjávarafurða.

Innflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 241,7 milljörðum eða 39,7% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd janúar-nóvember 2009
Millj. kr á gengi ársins 2009 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-nóvember
Nóvember  Janúar-nóvember
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 44.846 44.321 566.158 432.478 -23,6
Innflutningur alls fob 42.210 38.146 608.281 366.594 -39,7
Vöruskiptajöfnuður 2.636 6.175 -42.123 65.884 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-nóvember 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-nóvember
Nóvember Janúar-nóvember
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 43.163,1 44.321,2 413.012,9 432.478,4 -23,6
Sjávarafurðir 16.755,4 19.400,0 150.508,7 192.265,5 -6,8
Landbúnaðarvörur 788,8 856,9 5.089,7 6.815,4 -2,3
Iðnaðarvörur 22.949,1 22.507,3 214.222,3 215.813,7 -26,5
Aðrar vörur 2.669,9 1.557,0 43.192,2 17.583,8 -70,3
Innflutningur alls fob 40.625,6 38.146,5 443.741,7 366.594,1 -39,7
Matvörur og drykkjarvörur 3.776,6 3.750,3 34.216,3 37.946,2 -19,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 14.492,8 12.291,5 137.428,1 115.901,9 -38,5
Eldsneyti og smurolíur 6.344,4 6.183,9 56.113,9 47.269,4 -38,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.372,5 7.695,3 95.210,5 80.382,5 -38,4
Flutningatæki 2.230,1 1.625,0 58.507,9 26.538,3 -66,9
Neysluvörur ót.a. 6.356,9 6.557,2 61.917,0 58.034,4 -31,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 52,3 43,2 348,1 521,4 9,3
Vöruskiptajöfnuður 2.537,5 6.174,7 -30.728,8 65.884,3 ·


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 37,1% hærra mánuðina janúar–nóvember 2009 en sömu mánuði fyrra árs.

Í nóvember 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 3,9% hærra en í nóvember árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.