FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. JANÚAR 2009


Vöruskiptajöfnuður
Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 43,2 milljarða króna og inn fyrir 40,6 milljarða króna fob (44,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,5 milljarða króna. Í nóvember 2007 voru vöruskiptin hagstæð um 5,0 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu ellefu mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 413,1 milljarð króna en inn fyrir 442,0 milljarða króna fob (480,1 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 28,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 111,6 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 82,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 26,8 milljörðum eða 6,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 41,3% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 36,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,9% minna en á sama tíma árið áður.  Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, auk þess sem sölur á skipum og flugvélum til útlanda drógust saman. Fluttir voru út fólksbílar og flutningatæki til atvinnurekstrar fyrir 5,1 milljarð janúar-nóvember 2008.

Innflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 55,9 milljörðum eða 11,2% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mestur varð samdrátturinn í innflutningi á flutningatækjum, aðallega fólksbílum og flugvélum og í innflutningi á fjárfestingavöru og neysluvöru annarri en mat- og drykkjarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og í verðmæti innflutnings á eldsneyti og smurolíum.

Vöruskiptin við útlönd nóvember 2008
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-nóvember
Nóvember  Janúar-nóvember
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 69.650 43.180 386.312 413.089 6,9
Innflutningur alls fob 64.601 40.635 497.904 441.981 -11,2
Vöruskiptajöfnuður 5.049 2.545 -111.592 -28.892 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í nóvember 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-nóvember
Nóvember Janúar-nóvember
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 36.030,4 43.179,9 279.571,6 413.089,3 6,9
Sjávarafurðir 13.103,3 16.743,5 118.158,8 150.306,5 -7,9
Landbúnaðarvörur 378,0 798,7 3.112,2 5.075,1 18,0
Iðnaðarvörur 15.787,4 22.980,9 109.808,5 214.387,3 41,3
Aðrar vörur 6.761,7 2.656,8 48.492,1 43.320,4 -35,3
Innflutningur alls fob 33.418,6 40.634,7 360.329,9 441.981,3 -11,2
Matvörur og drykkjarvörur 2.455,2 3.640,3 23.290,5 32.482,9 0,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 7.968,7 14.946,6 88.437,1 140.054,3 14,6
Eldsneyti og smurolíur 4.059,1 6.344,1 33.251,5 55.986,7 21,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.099,0 6.952,9 78.991,2 89.162,6 -18,3
Flutningatæki 5.361,5 2.223,9 79.095,4 59.651,4 -45,4
Neysluvörur ót.a. 6.417,7 6.474,5 56.929,4 64.268,9 -18,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 57,3 52,4 334,8 374,5 -19,1
Vöruskiptajöfnuður 2.611,9 2.545,3 -80.758,3 -28.892,1 .

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 38,2% hærra mánuðina janúar–nóvember 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í nóvember 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 93,3% hærra en í nóvember árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin frá og með febrúartölum eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.