FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 04. JANÚAR 2008


Vöruskiptajöfnuður
Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 30,9 milljarða króna og inn fyrir 33,4 milljarða króna fob (36,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 2,5 milljarða króna. Í nóvember 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 15,5 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu ellefu mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 269,3 milljarða króna en inn fyrir 353,4 milljarða króna fob (382,8 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 84,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 135,4 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 51,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 50 milljörðum eða 22,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,9% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 41% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 35,2% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings og aukinnar sölu á skipum og flugvélum.

Innflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings einum milljarði eða 0,3% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri neysluvöru.

Vöruskiptin við útlönd nóvember 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-nóvember
Nóvember  Janúar-nóvember
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 19.727 30.941 219.042 269.310 22,9
Innflutningur alls fob 35.220 33.447 354.439 353.426 -0,3
Vöruskiptajöfnuður -15.493 -2.506 -135.397 -84.116 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í nóvember 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-nóvember
Nóvember Janúar-nóvember
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 20.188,8 30.941,0 222.603,7 269.310,0 22,9
Sjávarafurðir 10.618,2 13.094,6 115.563,6 118.149,4 3,9
Landbúnaðarvörur 482,7 373,9 3.631,3 3.108,3 -13,0
Iðnaðarvörur 8.121,3 16.081,0 83.127,4 110.624,6 35,2
Aðrar vörur 966,7 1.391,6 20.281,5 37.427,7 87,5
Innflutningur alls fob 36.045,0 33.446,9 360.201,9 353.426,1 -0,3
Matvörur og drykkjarvörur 2.272,3 2.536,1 20.865,6 23.436,4 14,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 7.553,9 7.889,6 88.969,5 88.305,6 0,9
Eldsneyti og smurolíur 4.654,1 4.059,1 33.041,2 33.238,4 2,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.504,8 7.101,7 88.582,7 78.986,6 -9,4
Flutningatæki 7.292,2 5.362,3 77.011,3 72.135,0 -4,8
Neysluvörur ót.a. 5.746,5 6.440,7 51.314,3 56.989,4 12,9
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 21,2 57,3 417,2 334,8 -18,5
Vöruskiptajöfnuður -15.856,1 -2.505,8 -137.598,2 -84.116,1 ·
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,6% lægra mánuðina janúar–nóvember 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í nóvember 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 2,3% lægra en í nóvember árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.