FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. APRÍL 2008


Vöruskiptajöfnuður
Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,3 milljarða króna og inn fyrir 37,1 milljarð króna fob (40,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 2,8 milljarða króna. Í mars 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 4 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu þrjá mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 78 milljarða króna en inn fyrir 102,7 milljarða króna fob (111,9 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 24,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 12,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 12,5 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 10,1 milljarði eða 11,4% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 41% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,4% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru nær helmingur alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,7% meira en árið áður. Mestur samdráttur varð í útflutningi skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega frystra flaka, en á móti kom aukning í útflutningi á áli.

Innflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 2,4 milljörðum eða 2,4% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á fólksbílum og hrá- og rekstrarvörum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd mars 2008
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-mars
Mars  Janúar-mars
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 30.637 34.291 80.417 78.006 -11,4
Innflutningur alls fob 33.942 37.133 91.610 102.739 2,4
Vöruskiptajöfnuður -3.305 -2.841 -11.193 -24.733 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í mars 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-mars
Mars Janúar-mars
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 30.637,3 34.291,5 80.416,7 78.006,2 -11,4
Sjávarafurðir 14.731,2 12.613,2 34.930,4 32.353,6 -15,4
Landbúnaðarvörur 354,4 264,2 1.278,1 1.206,5 -13,8
Iðnaðarvörur 11.554,3 17.421,2 31.806,8 38.926,1 11,7
Aðrar vörur 3.997,4 3.992,9 12.401,4 5.520,0 -59,4
Innflutningur alls fob 33.942,5 37.132,7 91.609,7 102.739,5 2,4
Matvörur og drykkjarvörur 2.118,7 3.078,0 5.740,3 7.532,2 19,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 9.285,3 10.964,5 24.568,1 28.818,9 7,1
Eldsneyti og smurolíur 3.543,4 2.198,0 8.100,7 9.318,7 5,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.083,0 9.290,0 23.596,9 23.383,6 -9,5
Flutningatæki 5.439,7 5.468,7 15.192,1 16.967,0 2,0
Neysluvörur ót.a. 5.421,9 6.123,9 14.317,6 16.665,0 6,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 50,4 9,7 94,0 54,1 -47,4
Vöruskiptajöfnuður -3.305,2 -2.841,2 -11.192,9 -24.733,2 ·


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 9,5% hærra mánuðina janúar–mars 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í mars 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 21,2% hærra en í mars árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í mars næsta ár.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin frá og með febrúartölum eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.