FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. JÚNÍ 2007

Vöruskiptajöfnuður

Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 20,5 milljarða króna og inn fyrir 31,2 milljarða króna fob (33,9 milljarða króna cif). Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 10,7 milljarða króna. Í maí 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 12,6 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu fimm mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 119,9 milljarða króna en inn fyrir 150,5 milljarða króna fob (163,6 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 30,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 59,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 28,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu fimm mánuðina ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 21,1 milljarði eða 21% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 40% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings og sölu flugvéla til útlanda.

Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings 7,6 milljörðum eða 5% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á flugvélum og fólksbílum en á móti kom aukning í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og neysluvöru annarri en mat- og drykkjarvöru.

Vöruskiptin við útlönd maí 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-maí
Maí  Janúar-maí
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 21.901 20.503 98.744 119.857 21,4
Innflutningur alls fob 34.472 31.169 158.051 150.476 -4,8
Vöruskiptajöfnuður -12.571 -10.665 -59.307 -30.619 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í maí 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-maí
Maí Janúar-maí
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 23.938,0 20.503,1 94.645,7 119.857,1 21,4
Sjávarafurðir 13.719,5 10.541,6 52.093,9 56.266,5 3,5
Landbúnaðarvörur 289,7 163,5 1.714,0 1.556,5 -13,0
Iðnaðarvörur 9.344,8 9.122,6 34.676,0 48.367,0 33,7
Aðrar vörur 584,0 675,4 6.161,8 13.667,1 ·
Innflutningur alls fob 37.678,3 31.168,6 151.491,5 150.475,9 -4,8
Matvörur og drykkjarvörur 2.370,3 2.246,2 8.678,3 9.889,4 9,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 10.456,6 8.314,3 39.741,7 42.660,4 2,9
Eldsneyti og smurolíur 2.096,6 2.911,5 9.890,9 12.749,2 23,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 9.102,6 7.074,4 37.339,1 37.652,4 -3,3
Flutningatæki 8.293,9 5.410,2 34.281,4 23.015,7 -35,7
Neysluvörur ót.a. 5.268,7 5.204,9 21.353,0 24.330,5 9,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 89,7 7,0 207,0 178,2 -17,5
Vöruskiptajöfnuður -13.740,3 -10.665,4 -56.845,7 -30.618,8 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 4,3% hærra mánuðina janúar–maí 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í maí 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 8,5% lægra en í maí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.