FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. JÚLÍ 2009


Vöruskiptajöfnuður
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 40,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 32 milljarða króna fob (34,7 milljarð króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,7 milljarða króna. Í júní 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 3,4 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu sex mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 211,8 milljarða króna en inn fyrir 178,8 milljarða króna fob (194,9 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam tæpum 33 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 70,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 93,8 milljörðum eða 30,7% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 17,1% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 48,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 30,2% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og á sjávarafurðum.

Innflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 164,6 milljörðum eða 47,9% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd janúar-júní 2009
Millj. kr á gengi ársins 2009 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-júní
Júní  Janúar-júní
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 59.813 40.712 305.663 211.815 -30,7
Innflutningur alls fob 56.394 31.976 343.452 178.846 -47,9
Vöruskiptajöfnuður 3.419 8.736 -37.789 32.968 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júní 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júní
Júní Janúar-júní
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 41.465,2 40.712,2 207.341,9 211.814,7 -30,7
Sjávarafurðir 13.772,9 19.397,7 77.657,3 94.957,9 -17,1
Landbúnaðarvörur 471,8 479,6 2.413,3 3.629,1 2,0
Iðnaðarvörur 22.571,5 19.299,7 99.617,5 102.436,1 -30,2
Aðrar vörur 4.649,0 1.535,2 27.653,8 10.791,5 -73,5
Innflutningur alls fob 39.094,7 31.976,0 232.975,2 178.846,3 -47,9
Matvörur og drykkjarvörur 2.882,3 4.024,1 17.357,6 19.129,0 -25,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.071,0 9.650,5 67.262,1 56.593,7 -42,9
Eldsneyti og smurolíur 5.067,8 3.082,6 23.504,2 21.136,2 -39,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.984,6 7.291,9 52.504,7 41.560,4 -46,3
Flutningatæki 4.939,3 2.817,8 39.502,5 12.575,6 -78,4
Neysluvörur ót.a. 5.062,5 5.060,9 32.657,6 27.595,6 -42,7
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 87,2 48,3 186,5 255,8 -7,0
Vöruskiptajöfnuður 2.370,5 8.736,2 -25.633,3 32.968,4 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 47,4% hærra mánuðina janúar–júní 2009 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júní 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 44,2% hærra en í júní árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.