FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. JÚLÍ 2008


Vöruskiptajöfnuður
Í júní mánuði voru fluttar út vörur fyrir 41,4 milljarða króna og inn fyrir tæpa 39,1 milljarð króna fob (42,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,3 milljarða króna. Í júní 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 13,4 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu sex mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 206,8 milljarða króna en inn fyrir 231,2 milljarða króna fob (251,3 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 24,4 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 50 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 25,6 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 25,6 milljörðum eða 14,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 48,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 41,4% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 37,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,1% minna en á sama tíma árið áður.  Mestur samdráttur varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka og í útflutningi skipa og flugvéla en á móti kom mikil aukning í útflutningi á áli.

Innflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings svipað og á sama tíma árið áður á föstu gengi¹. Mestur samdráttur varð í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum, eldsneyti og smurolíum og mat- og drykkjarvörum.

Vöruskiptin við útlönd júní 2008
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-júní
Júní  Janúar-júní
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 32.474 41.423 181.251 206.841 14,1
Innflutningur alls fob 45.857 39.091 231.264 231.248 0,0
Vöruskiptajöfnuður -13.382 2.332 -50.012 -24.407 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í júní 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júní
Júní Janúar-júní
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 23.105,3 41.422,6 149.522,6 206.841,0 14,1
Sjávarafurðir 10.320,2 13.771,9 66.567,9 77.425,2 -4,1
Landbúnaðarvörur 99,1 471,4 1.676,4 2.400,0 18,1
Iðnaðarvörur 9.320,5 22.719,8 58.435,2 100.182,2 41,4
Aðrar vörur 3.365,5 4.459,4 22.843,1 26.833,7 -3,1
Innflutningur alls fob 32.626,6 39.090,5 190.780,1 231.247,8 0,0
Matvörur og drykkjarvörur 2.374,6 2.820,8 12.240,0 16.881,0 13,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 6.827,4 13.095,3 49.556,1 66.659,7 11,0
Eldsneyti og smurolíur 2.344,0 5.067,8 15.093,4 23.377,4 27,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.343,3 7.838,1 45.007,6 49.257,0 -9,7
Flutningatæki 9.394,0 4.926,2 40.058,0 40.673,6 -16,2
Neysluvörur ót.a. 4.336,2 5.245,6 28.639,7 34.193,1 -1,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 7,2 96,9 185,4 205,9 -8,4
Vöruskiptajöfnuður -9.521,4 2.332,1 -41.257,5 -24.406,7 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 21,2% hærra mánuðina janúar–júní 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júní 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 40,5% hærra en í júní árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin frá og með febrúartölum eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.