FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. JÚLÍ 2007

Vöruskiptajöfnuður

Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 20,1 milljarð króna og inn fyrir 30,0 milljarða króna fob (32,6 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 9,9 milljarða króna. Í júní 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 13,5 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu sex mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 140,0 milljarða króna en inn fyrir 180,5 milljarða króna fob (196,2 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam tæpum 40,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 73,1 milljarð á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 32,5 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 17,4 milljörðum eða 14% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 48% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 41% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 27% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings og sölu flugvéla til útlanda en á móti kom minni útflutningur á lyfjum og lækningatækjum.

Innflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings 15,1 milljarði eða 8% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á flugvélum, fólksbílum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri neysluvöru.

Vöruskiptin við útlönd júní 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-júní
Júní  Janúar-júní
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 23.229 20.097 122.526 139.954 14,2
Innflutningur alls fob 36.723 30.029 195.588 180.519 -7,7
Vöruskiptajöfnuður -13.493 -9.932 -73.062 -40.565 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í júní 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júní
Júní Janúar-júní
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 26.439,1 20.096,9 121.084,9 139.954,0 14,2
Sjávarafurðir 11.688,5 10.318,9 63.782,4 66.585,4 3,2
Landbúnaðarvörur 241,0 99,1 1.955,0 1.655,6 -16,3
Iðnaðarvörur 10.067,6 9.269,2 44.743,6 57.636,2 27,3
Aðrar vörur 4.442,0 409,8 10.603,9 14.076,8 31,2
Innflutningur alls fob 41.796,7 30.028,7 193.288,1 180.519,0 -7,7
Matvörur og drykkjarvörur 1.839,0 2.378,2 10.517,3 12.267,6 15,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 8.810,7 6.832,2 48.552,4 49.509,5 0,8
Eldsneyti og smurolíur 4.529,4 2.270,9 14.420,3 15.020,4 2,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.562,2 7.360,4 48.901,3 45.009,3 -9,0
Flutningatæki 10.305,1 6.841,6 44.586,5 29.854,9 -33,8
Neysluvörur ót.a. 4.727,4 4.338,2 26.080,4 28.671,9 8,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 22,9 7,2 229,9 185,4 -20,3
Vöruskiptajöfnuður -15.357,5 -9.931,8 -72.203,3 -40.565,0 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,2% hærra mánuðina janúar–júní 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júní 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 12,1% lægra en í júní árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.