FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2009


Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 41,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 34,9 milljarða króna fob (37,7 milljarð króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 6,8 milljarða króna. Í júlí 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 33,3 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu sjö mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 253,5 milljarða króna en inn fyrir 213,7 milljarða króna fob (232,7 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 39,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 71,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 111,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 101,8 milljörðum eða 28,7% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,8% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 48,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 30,3% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og á sjávarafurðum.

Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 212,9 milljörðum eða 49,9% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd janúar-júlí 2009
Millj. kr á gengi ársins 2009 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-júlí
Júlí  Janúar-júlí
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 49.721 41.665 355.278 253.486 -28,7
Innflutningur alls fob 82.971 34.850 426.608 213.685 -49,9
Vöruskiptajöfnuður -33.250 6.814 -71.330 39.801 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júlí 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí
Júlí Janúar-júlí
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 34.179,6 41.664,6 241.521,5 253.485,7 -28,7
Sjávarafurðir 11.591,0 18.262,6 89.248,3 113.226,9 -13,8
Landbúnaðarvörur 333,2 596,3 2.746,5 4.225,4 4,6
Iðnaðarvörur 21.208,5 21.389,6 120.825,9 123.825,7 -30,3
Aðrar vörur 1.047,0 1.416,1 28.700,8 12.207,6 -71,1
Innflutningur alls fob 57.036,7 34.850,4 290.011,9 213.685,2 -49,9
Matvörur og drykkjarvörur 4.111,7 4.203,5 21.469,4 23.324,3 -26,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 18.048,5 8.856,2 85.310,6 65.454,4 -47,8
Eldsneyti og smurolíur 9.135,2 6.254,7 32.639,5 27.391,0 -43,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.975,4 7.308,0 63.480,2 48.852,5 -47,7
Flutningatæki 8.978,4 2.538,1 48.480,9 15.111,7 -78,8
Neysluvörur ót.a. 5.779,3 5.663,7 38.436,8 33.252,5 -41,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 8,2 26,2 194,7 298,8 4,4
Vöruskiptajöfnuður -22.857,1 6.814,2 -48.490,5 39.800,5 ·

¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 47,1% hærra mánuðina janúar–júlí 2009 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júlí 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 45,5% hærra en í júlí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.