Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 17,9 milljarða króna og inn fyrir 32,7 milljarða króna fob (35,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 14,8 milljarða króna. Í júlí 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 16,2 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu sjö mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 157,9 milljarða króna en inn fyrir 213,2 milljarða króna fob (231,7 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam tæpum 55,4 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 89,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 34,4 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 19,0 milljörðum eða 14% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 48% alls útflutnings og var verðmæti þeirra tæplega 5% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 42% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 30% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings en á móti kom minni útflutningur á lyfjum og lækningatækjum.
Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings 15,4 milljörðum eða 7% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á neysluvöru, annarri en mat- og drykkjarvöru.
Vöruskiptin við útlönd júlí 2007 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2007 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí | ||||
Júlí | Janúar-júlí | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | ||
Útflutningur alls fob | 16.836 | 17.858 | 138.875 | 157.863 | 13,7 |
Innflutningur alls fob | 33.009 | 32.689 | 228.668 | 213.234 | -6,7 |
Vöruskiptajöfnuður | -16.173 | -14.831 | -89.793 | -55.371 | · |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í júlí 2006 og 2007 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí | ||||
Júlí | Janúar-júlí | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | ||
Útflutningur alls fob | 19.377,9 | 17.857,8 | 140.462,8 | 157.863,2 | 13,7 |
Sjávarafurðir | 5.242,3 | 9.325,7 | 73.410,7 | 75.890,4 | 4,6 |
Landbúnaðarvörur | 206,3 | 139,6 | 2.167,2 | 1.816,0 | -15,3 |
Iðnaðarvörur | 6.241,4 | 7.964,0 | 51.004,1 | 65.651,6 | 30,2 |
Aðrar vörur | 3.234,4 | 428,4 | 13.880,7 | 14.505,3 | 5,7 |
Innflutningur alls fob | 37.993,7 | 32.688,8 | 231.281,8 | 213.234,5 | -6,7 |
Matvörur og drykkjarvörur | 2.058,8 | 2.160,9 | 12.576,1 | 14.422,5 | 16,0 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 8.435,5 | 7.725,8 | 56.987,9 | 57.238,6 | 1,6 |
Eldsneyti og smurolíur | 5.136,6 | 4.360,4 | 19.556,9 | 19.453,8 | 0,6 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 11.010,1 | 8.634,5 | 59.911,3 | 53.625,3 | -9,5 |
Flutningatæki | 6.856,5 | 4.896,9 | 51.443,0 | 34.749,8 | -31,7 |
Neysluvörur ót.a. | 4.469,6 | 4.892,5 | 30.550,0 | 33.541,4 | 11,0 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 26,6 | 17,8 | 256,5 | 203,2 | -19,9 |
Vöruskiptajöfnuður | -18.615,7 | -14.831,0 | -90.819,0 | -55.371,3 | · |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,1% lægra mánuðina janúar–júlí 2007 en sömu mánuði fyrra árs.
Í júlí 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 13,1% lægra en í júlí árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.
Talnaefni