FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. MARS 2007


Vöruskiptajöfnuður
Fyrstu tvo mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 43,2 milljarða króna en inn fyrir 54,4 milljarða króna fob (59,0 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 11,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 18,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 7,5 milljörðum króna skárri en á sama tíma árið áður.

Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 23,9 milljarða króna og inn fyrir 29,0 milljarða króna fob (31,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 5,0 milljarð króna. Í febrúar 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 8,8 milljarða króna á sama gengi¹.

Útflutningur
Fyrstu tvo mánuðina ársins 2007 nam verðmæti vöruútflutnings 6,6 milljörðum eða 17,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,5% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 66,9% meira en árið áður.
 
Innflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2007 nam verðmæti vöruinnflutnings 0,9 milljörðum eða 1,7% minna á föstu gengi¹ en árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á fólksbílum og flugvélum en á móti kom aukning í innflutningi á fjárfestingarvöru.

Vöruskiptin við útlönd febrúar 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-febrúar
Febrúar  Janúar-febrúar
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 16.576 23.930 36.621 43.176 17,9
Innflutningur alls fob 25.356 28.956 55.291 54.370 -1,7
Vöruskiptajöfnuður -8.780 -5.026 -18.670 -11.194 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í febrúar 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-febrúar
Febrúar Janúar-febrúar
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 14.661,2 23.929,7 31.712,0 43.176,0 17,9
Sjávarafurðir 4.392,2 11.671,7 16.759,6 20.216,7 4,5
Landbúnaðarvörur 334,8 362,4 821,7 906,1 -4,5
Iðnaðarvörur 5.113,8 10.672,4 10.519,4 20.272,6 66,9
Aðrar vörur 309,1 1.223,2 3.611,3 1.780,6 -57,3
Innflutningur alls fob 22.427,3 28.955,5 47.879,3 54.370,2 -1,7
Matvörur og drykkjarvörur 1.447,7 1.855,7 2.657,5 3.691,7 20,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 6.285,9 9.666,6 13.286,4 15.221,7 -0,8
Eldsneyti og smurolíur 554,9 1.089,8 3.233,9 4.557,4 22,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 5.753,2 8.317,0 12.454,0 15.510,4 7,8
Flutningatæki 4.536,2 3.423,8 9.260,4 6.447,1 -39,7
Neysluvörur ót.a. 3.832,6 4.594,2 6.938,3 8.898,3 11,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 16,8 8,4 48,8 43,6 -22,6
Vöruskiptajöfnuður -7.766,1 -5.025,8 -16.167,3 -11.194,2 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 15,5% hærra mánuðina janúar–febrúar 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í febrúar 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 13,1% hærra en í febrúar árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.