FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. MAÍ 2009


Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir 31,7 milljarða króna og inn fyrir 29,4 milljarða króna fob (32,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,3 milljarða króna. Í apríl 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 0,9 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu fjóra mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 132,4 milljarða króna en inn fyrir 115,5 milljarða króna fob (126,2 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 16,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 54,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 43,2 milljörðum eða 24,6% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 43,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,2% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 48,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,8% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á sjávarafurðum.

Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 97,9 milljörðum eða 45,9% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í verðmæti nær allra liða innflutnings, mest í fjárfestingavöru, hrá- og rekstrarvöru og flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd janúar-apríl 2009
Millj. kr á gengi ársins 2009 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-apríl
Apríl  Janúar-apríl
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 57.712 31.709 175.613 132.400 -24,6
Innflutningur alls fob 58.594 29.403 213.440 115.525 -45,9
Vöruskiptajöfnuður -882 2.306 -37.826 16.875 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-apríl 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-apríl
Apríl Janúar-apríl
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 40.072,5 31.709,3 118.306,0 132.400,0 -24,6
Sjávarafurðir 16.111,4 15.023,1 48.665,0 57.669,0 -20,2
Landbúnaðarvörur 315,5 476,7 1.492,6 2.644,7 19,4
Iðnaðarvörur 15.755,5 14.595,8 54.401,3 63.988,7 -20,8
Aðrar vörur 7.890,2 1.613,7 13.747,1 8.097,6 -60,3
Innflutningur alls fob 40.684,7 29.402,7 143.788,5 115.525,4 -45,9
Matvörur og drykkjarvörur 3.074,1 3.210,1 10.767,5 11.707,2 -26,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.995,9 10.389,2 41.517,6 38.531,2 -37,5
Eldsneyti og smurolíur 4.273,8 2.724,4 13.719,3 12.771,9 -37,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 9.591,6 7.015,2 35.301,5 27.214,9 -48,1
Flutningatæki 4.573,7 1.438,5 20.318,3 7.702,6 -74,5
Neysluvörur ót.a. 6.149,3 4.583,9 22.084,8 17.415,0 -46,9
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 26,3 41,5 79,7 182,5 54,3
Vöruskiptajöfnuður -612,2 2.306,5 -25.482,6 16.874,6 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 48,4% hærra mánuðina janúar–apríl 2009 en sömu mánuði fyrra árs.

Í apríl 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 44,0% hærra en í apríl árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.