FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. MAÍ 2008


Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir 33,4 milljarða króna og inn fyrir 40,7 milljarða króna fob (44,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 7,3 milljarða króna. Í apríl 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 14,1 milljarð króna á sama gengi¹.

Fyrstu fjóra mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 111,4 milljarða króna en inn fyrir 143,5 milljarða króna fob (156,3 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 32,0 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 25,4 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 6,6 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 5,0 milljörðum eða 4,3% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru nær helmingur alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,4% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 43% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,1% minna en á sama tíma árið áður.  Mestur samdráttur varð í útflutningi skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega frystra flaka, en á móti kom aukning í útflutningi á áli.

Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 1,6 milljörðum eða 1,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd apríl 2008
Millj. kr. á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-apríl
Apríl  Janúar-apríl
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 27.708 33.438 116.474 111.445 -4,3
Innflutningur alls fob 41.781 40.736 141.835 143.465 1,2
Vöruskiptajöfnuður -14.073 -7.298 -25.361 -32.020 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í apríl 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-apríl
Apríl Janúar-apríl
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 21.771,2 33.438,1 102.187,9 111.444,7 -4,3
Sjávarafurðir 10.776,4 16.024,7 45.706,9 48.378,7 -7,1
Landbúnaðarvörur 133,1 327,3 1.411,2 1.533,8 -4,6
Iðnaðarvörur 7.360,7 15.713,9 39.167,6 54.640,0 22,4
Aðrar vörur 3.500,9 1.372,2 15.902,3 6.892,1 -62,0
Innflutningur alls fob 32.828,6 40.736,4 124.438,3 143.464,7 1,2
Matvörur og drykkjarvörur 1.884,4 2.988,6 7.624,7 10.415,3 19,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 9.837,3 13.155,3 34.405,3 41.694,2 6,3
Eldsneyti og smurolíur 1.737,0 4.273,8 9.837,7 13.592,5 21,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.993,7 9.144,2 30.590,6 32.907,6 -5,6
Flutningatæki 7.511,3 4.548,3 22.703,4 21.515,3 -16,9
Neysluvörur ót.a. 4.787,8 6.592,4 19.105,4 23.251,8 6,8
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 77,2 33,9 171,2 88,0 -54,9
Vöruskiptajöfnuður -11.057,5 -7.298,3 -22.250,4 -32.020,0 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 14,0% hærra mánuðina janúar–apríl 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í apríl 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 27,3% hærra en í apríl árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin frá og með febrúartölum eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.