FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. SEPTEMBER 2008


Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 31,3 milljarða króna og inn fyrir 34,5 milljarða króna fob (37,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 3,2 milljarða króna. Í ágúst 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 17,4 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu átta mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 272,3 milljarða króna en inn fyrir 317,3 milljarða króna fob (344,6 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 45,0 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 81,9 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 36,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 35 milljörðum eða 14,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 46,5% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 36,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,9% minna en á sama tíma árið áður.  Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka, og í útflutningi skipa og flugvéla.

Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 1,9 milljörðum eða 0,6% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum og fólksbílum.

Vöruskiptin við útlönd ágúst 2008
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-ágúst
Ágúst  Janúar-ágúst
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 23.765 31.329 237.368 272.341 14,7
Innflutningur alls fob 41.120 34.518 319.262 317.334 -0,6
Vöruskiptajöfnuður -18 -3.188 -81.895 -44.993 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í ágúst 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst
Ágúst Janúar-ágúst
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 17.836,1 31.329,3 189.077,3 272.341,4 14,7
Sjávarafurðir 7.721,4 10.814,9 83.615,0 99.872,0 -4,9
Landbúnaðarvörur 211,9 313,2 2.027,9 3.047,3 19,7
Iðnaðarvörur 9.076,2 19.264,9 76.029,3 139.868,5 46,5
Aðrar vörur 826,6 936,3 27.405,0 29.553,6 -14,1
Innflutningur alls fob 30.861,3 34.517,7 254.311,3 317.334,4 -0,6
Matvörur og drykkjarvörur 2.073,9 2.232,4 16.419,7 22.562,9 9,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 7.958,2 13.407,1 65.295,5 98.885,4 20,6
Eldsneyti og smurolíur 2.553,7 3.748,6 22.007,8 36.261,2 31,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 5.983,3 7.872,5 59.565,6 67.637,2 -9,6
Flutningatæki 7.299,6 2.259,0 52.293,1 46.490,2 -29,2
Neysluvörur ót.a. 4.962,2 4.941,9 38.495,9 45.226,7 -6,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 30,4 56,1 233,7 270,8 -7,7
Vöruskiptajöfnuður -13.025,2 -3.188,4 -65.234,0 -44.993,0 .

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 25,5% hærra mánuðina janúar–ágúst 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í ágúst 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 33,2% hærra en í ágúst árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin frá og með febrúartölum eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.