FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. SEPTEMBER 2007


Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 17,8 milljarða króna og inn fyrir 29,8 milljarða króna fob (32,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um tæpa 12 milljarða króna. Í ágúst 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 14,0 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu átta mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 176,5 milljarða króna en inn fyrir tæpa 243 milljarða króna fob (264,1 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 66,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 103,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 37,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 21,6 milljörðum eða 14% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2 % meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 43% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 33% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings.

Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings 15,7 milljörðum eða 6% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri  neysluvöru.

Vöruskiptin við útlönd ágúst 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-ágúst
Ágúst  Janúar-ágúst
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 16.101 17.825 154.891 176.477 14,0
Innflutningur alls fob 30.101 29.798 258.687 242.971 -6,1
Vöruskiptajöfnuður -14.000 -11.973 -103.796 -66.494 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í ágúst 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst
Ágúst Janúar-ágúst
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 16.595,8 17.824,8 157.058,6 176.477,2 14,0
Sjávarafurðir 9.542,3 7.722,5 82.953,0 83.614,4 2,2
Landbúnaðarvörur 182,8 212,4 2.350,0 2.028,4 -12,5
Iðnaðarvörur 6.400,2 9.127,3 57.404,3 75.566,4 33,5
Aðrar vörur 470,5 762,7 14.351,2 15.267,9 7,9
Innflutningur alls fob 31.025,4 29.797,9 262.307,2 242.970,9 -6,1
Matvörur og drykkjarvörur 1.877,2 2.076,7 14.453,3 16.481,5 15,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 9.220,9 7.977,6 66.208,7 65.236,2 -0,1
Eldsneyti og smurolíur 1.622,7 2.551,9 21.179,6 22.005,7 5,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.212,5 5.992,8 67.123,8 59.558,3 -10,0
Flutningatæki 6.065,4 6.090,6 57.508,4 40.838,1 -28,0
Neysluvörur ót.a. 4.998,7 5.078,0 35.548,8 38.617,2 10,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 28,1 30,4 284,6 233,7 -16,7
Vöruskiptajöfnuður -14.429,6 -11.973,1 -105.248,6 -66.493,8 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,4% lægra mánuðina janúar–ágúst 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í ágúst 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 3,0% lægra en í ágúst árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.